Listahátíð í Reykjavík er sjálfseignarstofnun og starfar samkvæmt þríhliða samningi við Reykjavíkurborg og mennta- og menningarmálaráðuneyti, sem eru stofnaðilar hátíðarinnar. Framlag þeirra gegnir grundvallarhlutverki í því að tryggja rekstur og velgengni hátíðarinnar.
Stjórn Listahátíðar ber ábyrgð á rekstri hennar og fjárreiðum. Hún er skipuð þremur stjórnarmönnum. Fulltrúar menntamálaráðherra og borgarstjóra í Reykjavík gegna til skiptis formennsku og varaformennsku, í tvö ár í senn. Þriðji stjórnarmeðlimur er kosinn af Fulltrúaráði á tveggja ára fresti.
Listrænn stjórnandi er ráðinn af stjórn. Hann er yfirmaður Listahátíðar og ber ábyrgð gagnvart stjórn á öllum rekstri hátíðarinnar í listrænu og fjárhagslegu tilliti.
Þórunn Sigurðardóttir, formaður, skipuð af mennta- og menningarmálaráðherra til október 2020
Margrét Norðdahl, varaformaður, skipuð af borgarstjóra til október 2020
Tryggvi M. Baldvinsson, kjörinn fulltrúi Fulltrúaráðs til október 2020
Vigdís Jakobsdóttir
Fjóla Dögg Sverrisdóttir
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson
Vladimir Ashkenazy
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri