Menning og listir eru ekki forréttindi fárra heldur réttindi allra.
Í stefnu Listahátíðar í Reykjavík 2017-2020 er lögð rík áhersla á að hátíðin nái til fjölbreytts hóps áhorfenda og að aðgengi sé tryggt að viðburðum fyrir sem flesta. Aðgengismál í víðum skilningi eru höfð til hliðsjónar við allt skipulag hátíðarinnar.
Listahátíð mun teygja anga sína út í samfélagið, bæði bókstaflega (með því t.d. að bjóða upp á viðburði utan miðborgarinnar) og með sértækum aðgerðum til þess að ná til ákveðinna hópa.
Úrval ókeypis viðburða verður í boði á Listahátíð, bæði í almenningsrýmum og í Klúbbi Listahátíðar og þess gætt að allir aldurshópar fái eitthvað við sitt hæfi.
Upplýsingar um aðgengi fyrir hvern viðburð verða settar skýrt fram í kynningarefni.
Hátíðin verður sérstaklega kynnt fyrir fólki af ólíkum menningarlegum uppruna.
Rafrænum miðlum verður beitt til þes að ná til þeirra sem ekki hafa tök á að sækja hátíðina í eigin persónu.